03.11.2015 22:26
Vonandi verða þau sér og sínum til sóma.
|
||||||||||||||
Það er svo gaman að fá fréttir af hestunum sem flutt hafa til nýrra eigenda. Á þessari mynd er hann Gosi vinur okkar frá Lambastöðum sem nú lifir í vellystingum í Ameríku. Eigandinn og hann hafa náð frábærlega vel saman og gera það gott saman. Mummi fer reglulega í heimsókn og fylgjist með þessu flotta pari.
|
01.11.2015 22:49
Bara gaman.
|
Sólarlagið í gær var með því allra besta og veðrið dásemdin ein. Á svona dögum er ekkert betra en vera á fjöllum. Nú hafa verið unnin mörg hvuntagsafrek frá síðustu bloggfærslu. Þetta var sko vikan þar sem allt var að gerast og rúmlega það. Líflömbin komin inn á gjöf, búin að fá Hjalta dýralæknir í heimsókn og ormalyf í kaupbætir. Þau bíða svo eftir því að fjölgi í fjárhúsunum þannig að þau geti fengið jólaklippinguna. Eftirleitir voru aðal síðustu vikuna og árangurinn að verða nokkuð góður. Við hér í Hlíðinni búin að æða um þrjár jarðir og að auki hafa góðir grannar fyrir innan fjall heldur betur staðið sig. Rjúpnaskytturnar okkar voru ansi liðtækar við að sjá eftirlegu kindur enda allir sem einn fyrirmyndarsmalar. Þeir hinsvegar sem voru að stelast á rjúpu hér í nágenninu og það ekki einu sinni á réttum dögum.......mega vara sig. Það getur verið hljóðbært við eftirleitirnar............. Kvöldföndur húsfreyjunnar er svo að telja og stemma af sauðfjárbókmenntirnar. Nýjustu tölur úr ,,Hlíðarkjördæmi,, eru væntanlegar fljóttlega. Já jólaföndrið er ekki ennþá komið á dagskrá. Við frænkur rukum svo til og gerðum slátur um helgina eins og við höfum gert í næstum óteljandi ár. Ómissandi stemming með góðum árangri þar sem ungir sem aldnir taka þátt. Ein saumakonan var 5 ára og önnur 85 ára við hinar einhversstaðar á milli. Vikurnar líða á ógnar hraða örstutt síðan um síðustu helgi þegar við fögnuðum 40 árum með góðri vinkonu. Það er líka líflegt í hesthúsinum og mikið um að vera eins gott að nýta tímann vel á meðan Mummi er heima. Rúv sýndi snildar þátt í kvöld þar sem rætt var við tíu barna móðir. Það var ekki barlómur á þeim bænum. Sama hvernig spyrillinn reyndi að fá hana til þess að kvarta það bara tókst ekki. Hún geislaði af orku, jákvæðni og hamingju. Ég verð að játa að stundum finnst mér fólk með örfá börn láta eins og það séu að vinna einstök afrek í mannkynssögunni við að lifa daginn af. Nei verið róleg þetta er bara mín skoðun og ég er nú svolítið skrítin. Mér fannst þessi kona flott, krakkarnir og kallinn. Auðvita var mér hugsað til hennar Hrafnhildar ömmu minnar sem átti 12 börn og bjó hér í Hlíðinni. Hún var fædd árið 1906 átti 12 börn það elsta fætt 1927 það yngsta fætt 1945. Og það sem meira var hún varð ekkja 1945. Bara eitt í viðbót..................engin þvottavél, engin uppþvottavél, ekkert rafmagn, engin frystikista, enginn ísskápur, enginn sími, engar einnota bleyjur.................ekkert net krakkar. Hvernig var þetta hægt ????? |
22.10.2015 22:09
Ærlegar fréttir
|
Kallinn í tunglinu speglar sig í vatninu. Þrátt fyrir blíðuna í dag er orðið svolítið kalsalegt og alveg ljóst að veturinn er skammt undan. Nú eru sláturlömbin farin í Skagafjörðinn og bara örfáar sláturkindur eftir sem ekki komust fyrir á bílnum þegar lömbin fóru. Vonandi verðum við búin að heimta fleiri lömb áður en síðasta ferðin þetta haustið verður á Krókinn. Ásetningslömbin sem eru með allra flesta móti eru komin inn og njóta þeirra forréttinda að maula græna og góða tuggu. Hrútarnir eru heimaræktaðir, sæðingar, aðkeyptir og afmælisgjafir svo það er ýmislegt í boði þegar kemur að fengitímanum. Gimbrarnar eru heimaræktaðar, sæðingar og afmælisgjafir, já ég veit það er gaman að eiga afmæli. Dagurinn sem að hrútasýningin var haldin var ekki nógu langur hér í Hlíðinni, smalamennskan sem átti svo sem ekki að taka langan tíma breyttist í næturvinnu. Það gerði það að verkum að ég tapaði af fjörinu og varð að láta mér nægja fréttir í orði. Ég þarf endilega að segja ykkur rollufréttir í myndum, það er auðveldast. Ég er ekki að standa mig með myndavélina í fjárhúsunum, það er alveg ljóst. En nú lofa ég bót og betrun. Við fengum kærkomna hjálp í síðustu viku þegar góðviljaðir ættingjar mættu og aðstoðuðu okkur við eftirleitir og fjárrag í nokkra daga. Alveg ómetanlegt að fá þennan mannskap, alla sem einn. Heimtur eru þokkalegar og batna með hverjum deginum, sóttum níu kindur yfir fjallið í morgun og fundum svo þrjár í dag. Verst að mig vantar nokkrar uppáhalds kindur en það er ekki öll von úti ennþá. Já þetta er allt að koma. Mummi smellti sér út til Bandaríkjanna að líta á Gosa vin okkar og fjölskyldu, ferðin var frábær og Gosi í toppstandi. Nú er það hinsvegar Danmörk en þar er kennsluhelgi hjá honum með góðu fólki eins og svo oft áður. Frumtamningar eru í fullum gangi og nokkur býsna skemmtileg hross á járnum. Eins og stundum áður nefni ég nokkra feður tryppana til gamans. Frakkur frá Langholti, Arður frá Brautarholti, Fláki frá Blesastöðum, Gosi frá Lambastöðum, Stæll frá Hofstöðum og Glymur frá Skeljabrekku. Maron vinnumaður er nú orðinn Maron verknemi en hann er byrjaður hjá okkur í verknámi frá FMos. Fyrsta úttekt fór fram í síðustu viku og nú er það bara alvaran fram að jólum. Kappinn er með fjögur hross sem að hann vinnur með í samkomulagi við verknámsbónda. Auk þess tekur hann þátt í öðrum störfum sem nýtast honum við námið. Bara spennandi verkefni fyrir verknema og verknámsbændur.
|
13.10.2015 22:45
Endalaust afmælis.......
|
||||||||||||
Fyrir stuttu síðan fékk ég skemmtilega sendingu með myndum úr afmælinu mínu í vor. Það var hann Finnbogi minn snildar ljósmyndari sem að sendi mér þessar myndir. Takk kærlega fyrir sendinguna hún gladdi mitt ,,síunga hjarta,, smelli inn nokkrum og hinum síðar.
|
11.10.2015 21:22
Haustið í Hlíðinni.
Það hefur verið dásemdar blíða síðustu daga hér í Hlíðinni. Þetta er útsýnið af hlaðinu hjá okkur og mikið vildi ég geta látið þögnina fylgja með á myndinni. Friðsældin er algjör og ef að þetta er ekki staðurinn og stundin með sjálfum sér þá veit ég ekki hvað.
|
||||||||||||||
|
06.10.2015 22:04
Svarta blómið mitt.
|
||||
Sumir rækta margar tegundir í blómagraðinum sínum en ég bara eina. Sparisjóður minn í fullri vinnu við að slá seinni sláttinn í hólfinu sínu, laus við allar selskapsdömur þetta árið. Nú er bara næsta verkefni hjá honum að gera húsfreyjuna stolta af fjölnota hestinum sínum. Það hefur verið óþarflega blautt hjá okkur hér í Hlíðinni að undanförnu og ekki laust við að ég sé búin að fá nóg. Þegar skurðir eru fullir af vatni og bæjarlækurinn orðinn frændi Skaftár þá er þetta að verða gott. En nóg um það því enginn er ástæðan til að kvarta, við höfum það frábært. Nú er smá hlé í kindastússi og því tamningarnar komnar á fullt með mörgum skemmtilegum tryppum. Mummi smellti sér í heimsókn til meistara Gosa í henni Ameríku og ætlar að sóla sig þar um tíma. Við látum eins og það sé blíða af bestu sort hér í Hlíðinni og þökkum fyrir að fá hvorki sólsting né flagnað nef.
|
27.09.2015 21:40
Hér var stuð.
Við höldum í þann góða sið að gera okkur glaða kvöldstund í miðju réttarfjörinu. Eins og sjá má er stór hljómsveit sem leggur línurnar og teymir mannskapinn í söngunum.
Tilþrifin eru góð og gítarleikurum fjölgar á hverju ári, hvar endar þetta ???
|
||||||||||||||||||||||||
24.09.2015 21:59
Smalafjör
Smalamennska Hlíðarmúli og Oddastaðafjall. Á þessari mynd eru smalarnir sem fara að innan verðu lagðir á brattann. Selkastið og Brúnabrekkan bíða eins gott að flestir eru hættir að reykja. Skúli, Hrannar og Maron ríðandi en Hallur og Hallur labbandi.
|
||||||||||||
23.09.2015 00:00
Réttir árið 2015........... bara byrjunin.
|
||||||||||||
Líflega vika að baki hér í Hlíðinni þar sem leitir, réttir og góður félagsskapur hefur ráðið för. Dásamlegt veður en þokan aðeins að stríða okkur á köflum en þó ekki til teljandi vandræða. Heimtur nokkuð góðar og batna með hverjum deginum sem líður. Eins og áður höfum við notið velvilja og gæða vina og vandamanna sem komu og tóku atið með okkur alla leið.
|
30.08.2015 22:39
Rétta nú eða réttar dagsetningar
Góð vinkona í réttunum árið 2013. |
Jæja þá er komið að því að setja inn alla góðu dagana sem við eigum framundan í smalamennskum og réttastússi. Það er afar ánægjulegt hvað vinir og vandamenn hafa verið ákafir í að reka á eftir mér að setja þessa daga inná síðuna. Það boðar vonandi gott. Fjörðið hér heima í Hlíðinni hefst sem hér segir. Miðvikudagur 16 september smalað inní Hlíð og útá Hlíð. Fimmtudagur 17 september smalað á Oddastöðum. Föstudagur 18 september smalað Hlíðar og Hafurstaðaland. Laugardagur 19 september Vörðufellsrétt. Sunnudagur 20 september réttað hér í Hlíðinni. Kjötsúpa og rollufjör allan daginn. Mánudagur 21 september sláturlömb rekin inn. Þriðjudagur 22 september Mýrdalsrétt. Að auki eru réttir, smalamennskur og fjör í boði flestar helgar fram eftir hausti. Þið sem eruð áhugasöm um að mæta endilega smellið á mig skilaboðum. Eins langar mig til að biðja ykkur um að deila þessari færslu á fésinu þið sem þar eruð. Ég mun þegar nær dregur setja inn nánari upplýsingar og tímasetningar um viðburðina. Með bestu kveðjum úr Hlíðinni. |
28.08.2015 21:22
Fréttaskot
Gangskör frá Hallkelsstaðahlíð er núverandi uppáhald húsfreyjunnar. Og kellingarnar bara montnar. |
||
Það hefur heilmikið gerst síðan ég síðast skrifaði hér inná síðuna annað en myndablogg. Alltaf eitthvað um að vera hjá bændum og búaliði. Það skemmtilegasta er að þjálfa hross sem gera dagana góða og fjölbreytta. Margir góðir gripir hafa verið hér í þjálfun og tamningu þetta sumarið. Spennandi hross undan mörgum þekktum stóðhestum nú eða bara óþekktum. Það er sama hvaðan gott kemur og dýrmætt að geta fengið það tækifæri að kynnast góðum hestum úr öllum áttum. Nokkrir góðir vinir hafa skipt um eigendur og flutt til nýrra heimkynna. Þessi tími og fram á haustið er oft svo góður til að finna draumahestinn og hafa hann tilbúinn fyrir veturinn. Tryppin sem nú eru í tamningu eru m.a undan Glym frá Skeljabrekku sem á ein fjögur afkvæmi hjá okkur og hann er afi þriggja í viðbót. Sporður frá Bergi, Eldjárn frá Tjaldhólum, Arður frá Brautarholti, Sólon frá Skáney, Rammi frá Búlandi, Stígandi frá Stóra Hofi, og fl. og fl. Svo þegar mesta smalafjörið er frá koma inn tryppi m.a undan Spuna frá Vesturkoti, Frakk frá Langholti, Alvari, Aldri og Arði frá Brautarholti, Þristi frá Feti og Dyn frá Hvammi. Hryssurnar eru að týnast heim ein af annari eftir árangursrík stefnumót við stóðhestana. Eða það ætla ég a.m.k að vona. Karún mín og Snekkja eru komnar heim sónaðar fengnar við Skýr frá Skálakoti, Létt er enn á suðurlandinu en fengin við Ási frá Hofstöðum. Kolskör og Þríhella eru enn á stefnumóti við Þyt frá Skáney, Rák hjá Aljóni í Nýja-Bæ og Sjaldséð hjá Þristinum á Grímarstöðum. Svo er drottningin hún Skúta hjá Káti hér heima. Mummi fer reglulega erlendis að kenna og þá er það okkar hér heima að halda öllu í standi. Eins og áður hefur komið fram höfum við fengið marga góða gesti úr nemendahópnum hans hingað heim í sumar. Það er gaman að fá þessa áhugasömu hestamenn í heimsókn til okkar og vonandi verður framhald á því. Við höfum fengið marga ferðamenn hingað til okkar í sumar, gönguhópa, hestahópa, veiðimenn og tjaldgesti. Okkar reynsla af ferðamönnum er bara góð og ánægjuleg. Mig langar sérstaklega að nefna rúmlega 70 manna hóp af ungu fólki sem kom hingað til okkar á tjaldstæðin. Þetta unga fólk var gott ,,sýnishorn,, af því hvernig fyrirmyndar ferðamenn eiga að vera. Umgengni, samskipti, frágangur og viðmót allt til algjörar fyrirmyndar. Já það eru líka til fyrirmyndar ferðamenn sem eru sér og sínum til mikils sóma.
|
25.08.2015 22:07
Gaman saman.
|
||||||||||||||||||
Félagar og velunnarar Ungmennafélagsins Eldborgar í Kolbeinsstaðahreppi gerðu sér glaðan dag í tilefni af 100 ár afmæli félagsins. Boðað var til kaffisamsætis í Lindartungu þann 22 ágúst s.l og að sjálfsögðu var brugðið á leik í tilefni dagsins. Farið var yfir sögu félagsins í stuttu máli og gafst gestum kostur á að skoða fundagerðabækur félagsins. Bækurnar eru mikill fjársjóður sem geyma upplýsingar um tíðaranda liðins tíma. Ljóst er að þó svo að félagið hafi verið mjög virkt á tímabili þá hefur sú virkni ekki verið eins og fyrstu árin. Í máli Kristjáns Magnússonar á Snorrastöðum sem fór yfir sögu félagsins kom m.a fram að fjöldi funda var með ólíkindum. Um árabil var t.d siður að funda á gamlársdag en þess ber að geta að samgöngur og ferðamáti var verulega frábrugðinn því sem nú er. Já það hefur sennilega ekki verði skroppið sveitina á enda í einum grænum árið 1915.
|
06.08.2015 09:13
Hryssudagar.
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Lyfting frá Hallkelsstaðahlíð. Faðir Gosi frá Lambastöðum og móðir Upplyfting frá Hallkelsstaðahlíð. Þar er alltof sjaldan sem við smellum myndum af því sem hér er í gangi. Tókum smá syrpu um daginn en betur má ef duga skal. Hér koma nokkrar myndir af hryssum sem eru í þjálfun núna.
|
29.07.2015 11:59
Sumardagar
Þessi mynd er tekin af Steinholtinu. |
||||||||||||||||||||||||||||||
Síðustu dagar hafa verið einstaklega fallegir hér í Hlíðinni og Hnappadalnum öllum. Allt hey er komið í plast og einungis eftir að slá það sem við köllum inní hlið. Gæðin eru mjög góð en magnið síðra. Þetta verður sennilega ágætis blanda við fyrningarnar frá því í fyrra sem eru heldur leiðinlega blautar. Nú er bara að vona við fáum rigningu í hófi til að vökva hánna.
|
24.07.2015 23:32
Vippaði mér í Borgarfjörðinn
|
||||||||||||||
Ég notaði góða veðrið til að smella mér í Borgarfjörðinn með þrjár hryssur sem áttu þar plönuð stefnumót. Höfðinginn Þytur frá Skáney tók á móti þeim Kolskör og Þríhellu eins og sönnum ,,séntilhesti,, sæmir. Hann bauð þær velkomnar á sinn hátt en ég held að hann hafi verið dauðfeginn að þær óskuðu ekki eftir þjónustu í þessum hita.
|