02.01.2024 09:27
Réttir og nú eru það Skarðsrétt og Ósrétt 2023.
Eins og oftast þá var Skarðsrétt við Svignaskarði haldin í bliðskaparveðri. Þá er engin ástæða til annars en að brosa og njóta lífsins eins og við Þura gerðum svo sannarlega.
|
Þessi mynd er hinsvegar tekin í Ósrétt og þarna er snillingurinn hann Jói föðurbróðir minn að líta yfir safnið.
|
Haukatungufeðgar í góðum félagsskap húsfreyjunnar á Emmubergi.
Jói frændi og Sigurður á Narfeyri kátir að vanda.
|
28.09.2023 11:02
Réttir 2023 fyrsti hluti.
Nú er alveg tímabært að setja hér inn smá fréttaskot af árlegu hausthátíðininni okkar góðu. Já, réttirnar eru hátíð sem ég hef hlakkað til á hverju ári í meira en hálfa öld. Vá hvað þessi setning hljómar ................ furðulega en samt dásamlegt að fá að njóta. Leitir og réttir hafa gengið vel sem af er og við höfum verið ljónheppin með veður . Auðvitað þurftum við aðeins að máta regngallann en það er nú í fínu lag með það. Heimtur eru þokkalegar en ekki meira en það, hinsvegar stendur það vonandi til bóta um helgina. Fyrsta myndirn er af vöskum sveinum sem hér eru að leggja í hann að sunnanverðu. Tveir af þeim fóru svo yfir Skálarhyrnu og mættu norðan smölum og vöskum gönguliðum sem voru í Giljatungunum. F.v Maron, Jonni, Sveinbjörn, Skúli, Ísólfur og Hlynur.
|
Hún Dimma kom með sín lömb í Mýrdalsrétt og virðist bara koma vel undan sumri.
Þarna er Hrannar kominn í góð mál enda lestrarsérfræðingur og þroskaþjálfi á kanntinum.
Þessir tveir völdu að notast við baksvipinn að þessu sinni, töldu hann betri.
|
25.08.2023 21:50
Réttafjörið í Hlíðinni árið 2023.
|
24.03.2023 16:03
Dagurinn hennar mömmu.
Þann 25 febrúar síðast liðinn hefði hún mamma Svandís Hallsdóttir orðið 80 ára. |
Af því tilefni komum við saman og fögnuðum í hennar anda með veglegum veitingum, gleði og huggulegheitum.
Mamma vissi fátt betra en að fá fjölskylduna í mat eða kaffi, dekra og spjalla.
Helst að bjóða uppá nóg af heimagerðum veitingum og spjalla um daginn og veginn.
Þegar hugurinn leitar til ársins 2016 þegar hún kvaddi er það eins og gerst hafi í gær.
Þó eru árin orðin sjö og enn bíður undirmeðvitundin eftir símtalinu sem var partur af hverjum degi.
Söknuðurinn breytist að hluta í þakklæti fyrir allt það sem hún var en hverfur svo sannarlega ekki.
Eftir að ég varð amma sjálf koma oft uppí hugann hennar aðferðir og lífsviðhorf gagnvart börnum.
Mín besta fyrirmynd í þeim efnum og vonandi get ég gert eitthvað rétt og í hennar anda.
Gott er að ylja sér við góðar minningar og senda hlýja strauma yfir í sumarlandið.
Til hamingju með 80 ára afmælið elsku mamma mín.
Þakklæti, virðing og gleði er málið nú sem fyrr.
Myndatökur eru nauðsynlegar til að eiga góðar minningar og heimildir.
En það er eins og með margt, fólki finnst þær mis skemmtilegar.
Meðfylgjandi mynd segir allt sem segja þarf eða kannski er Kolbeinn að drífa sig í næstu myndatöku ?
Og börnin þau stækka og þá verður grettukeppni málið í fjölskyldumyndatökum.
|
01.01.2023 17:47
Komdu fagnandi 2023.
Kæru vinir.
Við óskum ykkur gleði, friðar og farsældar á nýju ári. Megi gæfa og góð heilsa fylgja ykkur öllum.
Árið var viðburðaríkt, lífið tók stundum ófyrirséðar stefnur en það er nú einmitt það sem gefur því lit.
Uppúr stendur fjölgun í fjölskyldunni þegar lítil dama fæddist rétt fyrir jólin. Stóri bróðir stendur sig vel og er orðinn aðstoðarmaður númer 1 við bústörfin.
Við erum svo þakklát fyrir allt okkar góða fólk.
Ættingjar, gamlir vinir, nýjir vinir þið eruð æði.
Njótum lífsins, gerum eitthvað skemmtilegt og verum góð hvert við annað.
Þar sem að lítill tími hefur gefist til að skrifa pistla og fréttir hér inná síðuna að undaförnu ætla ég að láta fylgja með nokkara mola í máli og myndum á næstunni.
Tímaröðin verður ekki rétt þar sem ég ætla bara að velja af handa hófi það efni sem hér birtist.
Við fórum ekki til Tene en nutum samt lífsins af lífi og sál þá sérstaklega hér heima í Hlíðinni. Ég hef kosið að muna mest eftir því hvað blíðviðrisdagarnir voru góðir og fallegir. Við fengum t.d dásamlegt veður í hestaferð, leitir og réttir svo að eitthvað sé nefnt. Heyskaparveður var hinsvegar nokkuð blóðþrístingstengt þ.e.a.s óvissustigið var alls ráðandi. Já og ég lærði allan textann við lagið ,,Veðurfræðingar ljúga,, í sumar. Skrítin tilviljun.
Á meðan maður bíður eftir því að mega keyra traktor verður bara að merkja rúllur. Það er þetta með að bíða eftir því að verða nógu gamall.
Fallegu dagarnir þeir voru alveg í boði svona inná milli.
Þeir voru jafnvel til sem töldu hitan í sumar vera full mikinn.
En eitt er víst góð stígvél voru þarfa þing síðast liðið sumar.
Þangað til næst góðar stundir. |
24.10.2022 12:53
Haustið 2022.
Fallegt haustveður í Hlíðinni og kindurnar í góðum málum í blíðunni.
|
23.10.2022 20:03
Lóa okkar.
Anna Júlía Hallsdóttir var fædd í Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal 3 febrúar 1930. Hún lést þann 5 október á Dvalar og hjúrkunarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi. Foreldrar hennar voru hjónin Hallur Magnússon og Hrafnhildur Einarsdóttir í Hallkelsstaðahlíð. Anna Júlía var eitt tólf barna þeirra hjóna. Þau eru Einar, f.1927, Sigríður Herdís,f.1928, Sigfríður Erna,f.1931, Ragnar, f.1933, Margrét Erla, f.1935, Guðrún, f.1936, Magnús,f.1938, Sveinbjörn,f.1940, Elísabet Hildur,f.1941, Svandís, f.1943, og Halldís, f.1945. Látin eru Magnús, Einar, Guðrún, Svandís, Ragnar, Sigríður Herdís og Sigfríður Erna. Anna Júlía eða Lóa eins og hún var ævinlega kölluð byrjaði ung að vinna við bú og heimilishald foreldra sinna í Hallkelsstaðahlíð. Anna Júlía fór til náms á Húsmæðraskólann á Laugarvatni. Hún flutti síðan til Reykjavíkur og vann m.a í Vinnufatagerð Íslands, var í vist á nokkrum heimilum og starfað í fiski. Einnig var hún kaupakona á Seylu í Skagafirði. Rúmlega þrítug flutti hún heim í Hallkelsstaðahlíð og bjó þar til í lok febrúar árið 2020 en þá flutti hún á Brákarhlíð. Útförin fer fram frá Kolbeinsstaðakirku laugardaginn 15 október og hefst kl 14.00
Hér á eftir koma minningarorð sem ég ritaði um Lóu.
Lóa móðursystir mín hefur kvatt í hinsta sinn. Hógvær, hlý og þakklát eins og hún var ævinlega. Hún fékk tíma til að kveðja og var þakklát fyrir það. Stór fjölskyldan var henni allt og góðar fréttir af henni var lífið sjálft. Ég á henni að þakka umhyggju, hlýju og gleði fyrir fimm ættliði. Amma Hrafnhildur og Lóa áttu traust og gott samband alla tíð. Mamma og Lóa voru afar nánar sérstaklega síðustu árin þegar þær töluðu saman í síma amk einu sinni á dag. Þegar mamma féll frá þá erfði ég þessar stundir. Símtal frá Lóu fyrir tíufréttirnar var orðinn fastur punktur í lífinu. Fréttir af daglegum störfum hér í Hlíðinni voru bestu fréttirnar fyrir hana. Þegar Mummi sonur minn kom í heiminn varð hann eins og ég einn af hennar börnum. Ekki minnkaði hlýjan og aðdáunin þegar Atli Lárus sonur Mumma fæddist. Lóa dýrkaði litla manninn og var dásamlegt að sjá þau hittast. ,,Hvað er að frétta af litla polla,, og svo ljómaði hún. Minningar mínar frá unga aldri eru margar tengdar Lóu og hennar lífi. Hún kenndi mér að spila grúfu, prjóna og stoppa í ullarsokka. Ef að maður bað Lóu að gera eitthvað þá var það alltaf sjálfsagt. Hún gerði alltaf allt fyrir alla sem hún gat og það með bros á vör. ,,Lóa hvar er þetta og hvar er hitt,, og Lóa fann alltaf allt. Þolinmæði var henni ríkulega gefin og sást það best á samskiptum hennar við börnin sem voru á hennar lífsleið. Hún var nánast amma allra þeirra og gaf sér endalausan tíma. Klukkustundirnar sem að hún var að svæfa börn eða lesa fyrir þau eru klárlega óteljandi. Óteljandi eru líka sokkarnir og vettlingarnir sem að Lóa prjónaði og gaf ættingjum og vinum. Þeir munu ylja um ókomin ár bæði líkama og sál. Þegar ég var lítil átti ég þann draum heitastan að kunna og fá að marka lömb. Eins og gefur að skilja er það ekki verk fyrir börn en Lóa fann lausn á þessu máli. Tíminn kom innvafinn í pappír á þessum árum. Pappírnum safnaði Lóa saman og klippti síðan út eftirlíkingu af lambseyrum. Þessi lambseyru sem Lóa bjó til skiptu tugum í hverri viku og voru nýtt upp til agna. Lóa var ekki mikill bóndi en nokkur voru þau verk sem að hún tók að sér sem skiptu afar miklu máli í búskapnum. Kíkirinn var aldrei langt undan og mörgum kindum bjargaði hún þegar hún sá eitthvað sem þarnaðist nánari skoðunnar. Fjárstofnin hennar var ekki stór en saman stóð af Lögg og Fegurð sem voru endurnýjaðar eftir þörfum. Hún taldi hrossin í hverri girðingu oft á dag og fylgdist vel með að ekkert færi út fyrir. Það voru mikil viðbrigði þegar hún flutti á Brákarhlíð og lagið kíkirinn á hilluna. Þegar Lóa flutti á Brákarhlíð voru skrítnir covid tímar en hún tók þessum umskiptum af æðruleysi eins og henni einni var lagið. Lóa og Svenni áttu góðar stundir saman á Brákarhlíð rétt eins og hér heima. Samkennd, hlýja og virðing einkenndi þeirra daglegu samskipti.Starfsfólki Brákarhlíðar eru hér færðar innilegar þakkir fyrir hlýja og góða umönum. Við hér í Hlíðinni þökkum Lóu fyrir það sem hún gaf okkur öllum. Minningin um ljúfa, góða og umhyggjusama konu lifir og yljar. Sigrún Ólafsdóttir og fjölskylda.
|
24.09.2022 15:49
Réttir í máli og myndum en þó aðallega myndum.
Við byrjuðum réttarfjörið í Skarðsrétt við Svignaskaðrð eins og oft áður. Gott veður og skemmtilegt fólk er staðalbúnaður þar.
|
Já við vorum bara kát með daginn.
Þessi mynd er hinsvegar tekin þegar við vorum að reka inn safnið heima í Hlíðinni.
|
31.08.2022 09:08
Meira af hestaferð 2022
Það var skemmtilegt að koma í Stangarholt. Þar beið góð girðing ferðahestanna og kvöldsólin setti hálfgerða töfra yfir allt.
|
Alltaf gott að fá góða gesti í áningarstað.
|
Staðreyndir tala sínu máli hér er ein.
Sopi við hverja járningu og staðan í pelanum bara fín.
Ég vitna alltaf í orðin hennar mömmu þegar allir eru komnir heilir heim bæði menn og hestar. ,,Það besta við frábæra ferð er þegar allir koma heilir og kátir heim,, Mummi og Einstakur telja menn og hesta í gegnum hliðið heima.
|
17.08.2022 19:53
Hestaferð 2022 fyrsti hluti.
Það var alveg kominn tími á hestaferð, já alvöru rekstrarferð með slatta af hrossum og góðum vinum. Lagt var af stað úr Hlíðinni með flotann og ferðinni heitið beint af augum. Ferðafélagið heitir jú Ferðafélagið beint af augum. Fyrsti áfanginn var að Kolbeinsstöðum og gekk ferðin ljómandi vel en hraðinn á rekstrinum svona í meira lagi. Þar hvíldu hrossin eina nótt og mannskapurinn fór heim í Hlíðina og undirbjó sig fyrir skemmtilega daga. Næsti áfangi var að Staðarhrauni frábær leið og dásamlegt veður.
En Tálminn hefur tekið við og var bara nokkuð vatnsmikill þegar við vorum á ferðinni.
|
Mummi fór í gott fótabað og sú brúna stóð sig ljómandi vel í sullinu.
|
03.05.2022 12:39
Sigrún Ólafsdóttir bóndi og tamningamaður skipar 5. sætið á lista Framsóknar í Borgarbyggð.
Sigrún er 57 ára og býr í Hallkelsstaðahlíð þar sem fjölskyldan rekur sauðfjárbú, hrossarækt og víðtæka þjónustu við hestamenn. Auk þess hefur verið byggð upp ferðaþjónusta á síðustu árum sem fer ört stækkandi. Hún er fædd í Reykjavík en bjó allan sinn uppvöxt í Hallkelsstaðahlíð, gift Skúla Lárusi Skúlasyni bónda, trésmíðameistara og tamningamanni. Búið reka þau í samvinnu við son sinn Guðmund Margeir, reiðkennara og tamningamann og Brá Atladóttur, bú og hjúkrunarfræðing. En þau búa einnig í Hallkelsstaðahlíð með tveggja ára syni sínum.
Sigrún bjó 12 ár í Borgarnesi þar sem að hún starfaði fyrst á Hótel Borgarnesi og lengst af í Sparisjóði Mýrasýslu. Sigrún hefur verið virk frá unga aldri í ýmiskonar félagsmálum. Var oddviti sveitastjórnar í Kolbeinsstaðahreppi í átta ár, varaþingmaður Framsóknarflokksins og varamaður í hreppsnefnd Borgarness um árabil. Hefur auk þess setið í fjölmörgum nefndum á vegum sveitarfélaga og ráðuneyta. Nú síðast setið í Umhverfis og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar, Fjallskilanefnd Kolbeinsstaðahrepps og á sæti í stjórn Brákarhlíðar.
Sigrún hefur lagt sitt af mörkum í félagsmálum hestamanna. Formaður Félags tamningamann, formaður hestamannafélagsins Snæfellings, sat um árabil í stjórn Landssambands hestamanna lengst af sem gjaldkeri átti einnig sæti í Fagráði um nokkurt skeið. Hún hefur verið virkur dómari í gæðinga og íþróttakeppni í rúmlega 30 ár. Einnig kannast margir við rödd hennar enda verið þulur á fjölmörgum keppnum og viðburðum í hestamennsku.
„Ég er þakklát fyrir það traust að fá að skipa 5 sæti lista framsóknarmann hér í Borgarbyggð. Þar fer fjölbreyttur og öflugur hópur fólks sem tilbúið er að leggja sitt af mörkum til að bæta okkar góða sveitafélag og sækja fram á öllum sviðum.
Tækifæri til uppbyggingar, framþróunar og vaxtar eru á hverju horni í sveitarfélaginu. Saman þurfum við að nýta þessi tækifæri.
Við þurfum að standa vörð um mikilvæga innviði sveitarfélagsins sérstaklega þegar farið veður í uppbyggingu sem vonandi leiðir til fjölgunar íbúa.
Við þurfum að tryggja að velferðarþjónusta verði sem best um allt sveitarfélagið.
Við þurfum að tryggja að öll skólastig verði í fremstu röð á landsvísu.
Við þurfum að tryggja að samgöngur, fjarskipti og orkumál í sveitafélaginu verði a.m.k. viðunandi.
Við þurfum að tryggja sem best rekstrarumhverfi fyrir fyrirtæki í sveitafélaginu.
Við þurfum að tryggja að landbúnaður verði áfram einn að burðarásum samfélagsins.“
01.02.2022 13:51
Námskeið með Susanne Braun og Mumma.
Helgarnámskeið með Mumma og Susanne Braun 18-20 febrúar 2022 í Hallkelsstaðahlíð Kennarar: Guðmundur M. Skúlason (Mummi) Reiðkennari frá Hólaskóla. Dr Susanne Braun, fagdýralæknir fyrir hestasjúkdóma og IVCA kírópraktor Markmið: -Uppbygging þjálfunar í upphafi vetrar. -Einstaklings miðað mat á markmiðum fyrir hest og knapa. -Auka þekkingu þjálfara á að meta líkamsbeitingu hests og knapa við þjálfun. - Boðið verður upp á fyrirlestur og sýnikennslu. -Sýnt verður hvernig hægt er að greina skekkju eða læsingu í hestunum. -Hvernig og hvar hnakkurinn á að liggja á hestbaki og hvaða upplýsinga við getum fengið út frá vöðvafyllingu á hestinum. Uppbygging námskeiðs. Föstudagskvöld: 30 min reiðtími með Mumma og Susanne þar sem nemandi og kennarar meta verkefni sem unnið verður í yfir helgina. Laugardagur. 08:00-17:00 Hver nemandi fær 1x 45 mín reiðtíma með Susanne þar sem farið verður yfir þjálfunarplanið. Heilbrigðisskoðun, æfingar og jafnvel meðhöndlun ef þurfa þykir. Hver nemandi fær 1x 45 mín reiðtíma með Mumma. Um kvöldið kl 20:00 verður opin fyrirlestur með Dr Susanne Braun, fagdýralækni hestasjúkdóma og IVCA kírópraktor Á milli hests og knapa - hvaða skilaboð leynast í útliti og líkamsbeitingu hestsins? Susanne hefur vakið athygli manna með óhefðbundnum lækningaraðferðum en meðfram hefðbundnum dýralækningum stundar hún hnykkingar á hestum. Susanne segir að hnykkingar reyni frekar á tækni en krafta. Til að losa læsta liði þurfi snöggt átak. Það er því ekki eins mikið mál og það virðist vera fyrir fínlega konu að hnykkja hest. Tilgangurinn með hnykkingum er sá að jafna hreyfigetuna í hryggjaliðum. Í fyrirlestrinum kynnir hún hnykkingameðferð og svarar spurningum, til dæmis: -Hvað gera hnykkingar fyrir hestinn? -Hvað gera taugarnar fyrir líkamsstöðuna? -Hvað orsakar læsingar? -Hvaða einkenni sýnir hestinn sem er með læsta liði? Verð fyrir fyrirlesturinn er kr 1.500.- en er innifalinn fyrir þátttakendur á námskeiðinu. Sunnudagur 09:00-17:00 1x 45 mín reiðtími með Mumma. Susanne verður með kynningu og fræðslu um hnakka fyrir nemendur. Oft er erfitt fyrir knapann að átta sig á hvar hnakkurinn á að vera staðsettur. -Passar hnakkurinn fyrir hestinn ? -Skiptir yfirlína og bygging hestsins miklu máli ? -Skaðast hesturinn ef að hnakkurinn liggur ekki á réttum stað ? Verð fyrir námskeiðið með öllu er kr. 70.000- Skráning og allar nánari upplýsingar hjá Mumma Sími: 7702025 e-mail: [email protected]
|
03.01.2022 19:44
Gleðilegt ár.
|
||||||||||||||
Við hér í Hlíðinni sendum ykkur bestu óskir um gleði, farsæld og frið á nýju ár. Með kæru þakklæti fyrir það liðna. Við erum sannfærð um að nýtt ár verði frábært enda er ártalið fallegt 2022. Á myndinni hér er ungur maður ánægðu með fyrstu jólajöfina sem opnuð var. Mátti svo sem ekkert vera að því að stilla sér eitthvað upp fyrir myndatökur enda maðurinn í jólafríi.
|