06.03.2017 23:01
Litfagrir vinir.
Þegar útigangnum er gefið eru sumir verulega forvitnir og leggja mikið á sig til að ná sambandi. Hann Léttstígur réði ekki við sig og tróð hausnum undir næsta hest til að reyna að láta taka eftir sér. Stóðið hefur notið góða veðursins alveg eins og við enda voru þau ekkert að flýta sér í rúllurnar þegar gjöfin var að koma. Léttstígur er undan Sporði frá Bergi og henni Létt okkar frá Hallkelsstaðahlíð. Spennandi hestur með skemmtilegan lit.
|
||||||
|