27.10.2010 22:40

Karlremba í kvennafríi............



Á þessari mynd eru Rjóð og Góðlátur að ,,knúsast,, ætli Rjóð sé með permanet ????

Ég átti alveg eftir að segja ykkur frá kvennafríinu mínu það heppnaðist aldeilis vel.
Klukkan 14.25 á mánudaginn var ég í miklu ati sko í vinnunni, því var  augljóst að mitt kvennafrí hefði gífurlegar afleiðingar. Það var því ekkert annað í stöðunni en að láta á verkfallsmáttinn reyna og taka þátt til að styðja góðan málstað okkar stelpnanna.
Ég horfði á klukkuna verða 14.24 og á ,,slaginu,, 14.25 lokaði ég augunum snéri mér í hring og var með þessari aðgerð ,,farin,, úr vinnunni.
Ég hélt áfram atinu en nú algjörlega í fríum og frjálsum tíma, eina sem breyttist var að nú var ég í ham já jafnréttisham.
Það eru nefninlega ekki allir sem að eiga þess kost að sameina áhugamálið sitt og vinnuna en það geri ég og tel það þvílík forréttindi og dekur. Það breytir samt ekki því að ég stend heilshugar með konum í þessari baráttu og verð bara öskureið þegar launamisréttið ber á góma. Hitt er svo annað mál að í sumum tilfellum eru konur að fara fram á forréttindi og rugla því saman við jafnréttisbaráttu. Það er á gráu svæði.
Á sunnudagskvöldið horfði ég á þátt um Vigdísi forseta þar sem meðal annars var rætt við karlana sem buðu sig fram til forseta á sama tíma og hún. Ég segi ykkur það í trúnaði mér varð illt, þvílík helv.... karlremba.
En Vigdís var flott og stóðst einhvern veginn alveg tímans tönn algjörlega öfugt við karlana.
Annars er ég komin útá hálan ís  að skrifa um jafnréttismál það er nefninlega þannig að ég er smá karlremba en reyni að fara vel með það.
Ég vil elda og baka helst án afskipta..............
Mér finnst aftur á móti bara gott mál að karlarnir skúri og gangi í öll helstu heimilisverk jafnvel þó það búi kona á heimilinu.
En ég vil alltaf hafa kall við hendina þegar t.d skipta þarf um dekk og svoleiðis.
Þetta hefur ekkert með forréttindi að gera ef að þið haldið það.............þeir eru bara miklu betri í þessu og á þá ekki að leyfa þeim að njóta sín þessum elskum ??????