19.04.2009 23:15
Er ég kem heim í Búðardal....
Er ég kem heim í Búðardal...............Gosi og Skúli í léttri sveiflu.
Það er orðið alltof langt síðan ég hef gefið mér tíma til að setja inn fréttir í vefgluggann okkar. Svo ég hef ákveðið að reyna að vera svolítið dugleg á næstunni.
Annars er það ekki bara einskær leti að vera ekki búin að skrifa undan farið, heldur er búið að vera brjálað að gera. Við eru með margt á járnum núna svo að dagurinn er stundum alltof fljótur að líða. Það eru mörg spennandi tryppi í húsinu núna sum eru að stíga sín fyrstu skref á námsbrautinni en önnur eru lengra komin. Eins erum við með nokkur ljómandi söluhross á okkar snærum. Á síðustu dögum hefur oft verið erfitt að gera uppá milli hver sé fyrirmyndarhestur dagsins en í dag var það Muggur Hlynsson sem eins og fyrr er frábær reiðhestur.
Í gær skruppum við í Búðardal ég örmerkti nokkur falleg tryppi m. a einn eigulegan hest undan Sóloni frá Skáney og Fenju frá Árbakka, vá sá á eftir að vera spennandi.
Skúli og Mummi kepptu á íþróttamótinu Mummi á Dregli og Skúli á Gosa. Árangurinn þokkalegur allavega þrír verðlaunapeningar meðferðis heim.
Veitingarnar í dölunum frábærar eins og venjulega tertur og steikur.
Takk fyrir góðar mótttökur.
Vorið er komið allavega í bili hlýtt, væta og fuglasöngur vona innilega að það komi ekki aftur vetur á næstunni. Óðum styttist í sauðburðinn og kindurnar að verða ansi bústnar, von er á fyrstu lömbunum í kringum mánaðamótin og allt fer á fullt í kringum 10 maí.
Er að leita mér að vökumanni í fjárhúsin frá mánaðamótum og allavega fram í miðjan mánuðinn. Þarf helst að vera vanur. Dettur ykkur einhver í hug????
Munið konur eru líka menn.
Einhver útbreiddur misskilningur er í gangi varðandi mig og barnauppeldi. Ég er ekki að fara að taka börn í sveit í sumar bara svo það sé á hreinu.
Það hafa fjórir hringt í mig á undanförnum dögum, fólk sem að ég þekki ekki neitt eða mjög lítið. Ekki það að mér leiðist börn heldur hef ég bara engan tíma fyrir stærra heimilishald, elskurnar mínar.
Skrifað af Sigrún Ólafsdóttir