Færslur: 2009 Október
28.10.2009 22:54
Rjúpnavinir og aðrir kunningjar................
Hnappadalurinn hefur uppá margt að bjóða.............................
Það er með ólíkindum hvað ,,kunningjahópurinn,, stækkar rosaleg hér í Hlíðinni þegar rjúpnatíminn nálgast. Síminn hringir, það bætist í pennavinahópinn á netinu og maður eignast jafnvel nýja kunningja þegar maður fer í búðina. Suma þekkir maður vel aðra svolítið og suma bara ekki neitt. Annars er ég nú ómannglögg svo að þetta er kannske allt saman misskilningur. Ég fékk til dæmis skemmtilegt símtal í kvöld þá hringir í mig maður sem að hafði verið náinn vinur, vinar löngu látins frænda míns. Já þetta hljómar nú ekki mjög skírt en svona var það nú samt. Hann hafði mikinn áhuga á að endurnýja þessi tengsl og vináttu (sem fyrst allavega fyrir helgi). Ég hef nú alls ekkert á móti því að kynnast nýju fólki nema síður sé en það væri óneytanlega skemmtilegra að dreifa því svona á lengri tíma.
En til að taka af öll tvímæli þá er málum þannig háttað hér í Hlíðinni að sérvaldir og löngu ráðnir vaskir sveinar sjá um öll rjúpnamál hér. Þeir skiptast samviskusamlega á og eru á ferðinni flesta rjúpnadaga. Þetta eru geðprýðismenn en geta orðið viðskotaillir ef að einhverjir eru að þvælast á ,,þeirra,, svæði svo að það er enginn ástæða til að ergja þá að óþörfu.
27.10.2009 22:47
Eitthvað svo kindalegt.
Hér koma myndir frá rúningskeppninni í Búðardal, þarna er bjartasta von okkar Kolhreppinga í rúningi. Þetta er hann Þórður í Mýrdal sem að varð í öðru sæti í flokknum ,,minna vanir,, svo hér fyrir neðan er næsti ættliður.....................
...................Gísli bóndi í Mýrdal sem varð í öðru sæti í aðal keppninni eftir harða baráttu við Julio Cesar frá Hávarðsstöðum meistarann frá því fyrra.
Það var gaman að fylgjast með þessari keppni og mjög líklegt að fleiri verði með á næsta ári.
Í gær og í dag höfum við skoðað og yfirfarið hverja einustu kind, kannað hvernig lömbum hún hefur skilað og hvort að heilsufarið sé ekki ákjósanlegt. Þetta gerum við alltaf á haustin til að hafa sem besta yfirsýn og ganga úr skugga um að engin kind verði sett á vetur nema hún standist þetta tékk. Einnig er þetta gott tækifæri til að finna út hvaða kindur vantar enn af fjalli. Öll númer eru borin saman við bækurnar og þannig sést hvaða kindur eru óheimtar.
Á morgun fara svo síðustu lömbin og sláturskindurnar norður á Sauðárkrók. Alltaf svo gott þegar allt þetta sláturstúss er afstaðið.
Heimtur eru betri en í fyrra en samt vantar ennþá nokkra tugi af fjalli. Á næstu dögum set ég upp Tigergleraugun og tel saman hvað raunverulega vantar af fjalli.
Loksins er búið að laga ruglið sem var á síðunni en ég á enn eftir að bæta inn tenglum sem að duttu út. Verð að fara að gefa mér tíma til að dekra við síðuna og bæta meiri upplýsingum inn.
26.10.2009 23:03
4x4 eru ekki bara drif heldur líka fjórir ferhyrndir.
Já hann er ekki bara ferhyrndur hann Ferningur það hefur sko komið í ljós að undanförnu.
Við fengum lömb undan átta kindum og honum síðast liðið vor, fjölkvænið heldur skorði við nögl út af hornunum fjórum. En útkoman hreint frábær kindurnar allar með tveimur lömbum, þungi og flokkun með ágætum. Einnig voru sónarskoðaðar þrjár gimbrar undan honum og þær komu mjög vel út. Ég tek það skýrt fram að það er ekki stefnan að fjölga ferhyrndum kindum neitt að ráði hér en mér er mikið í mun að viðhalda þessu kyni þar sem það er komið frá föður mínum heitnum. Ekki skemmir því fyrir að þetta séu góðar og gjöfular kindur sem reyndar eru í eigu Mumma. Ég er bara svona faglegur kynbótarolluráðgjafi hjá Mumma og að sjálfsögðu á ofurlaunum hjá honum eins og ráðgjöfum ber.
Ég fór inni Búðardal á laugardaginn að fylgjast með rúningsmönnum etja kappi og einnig til að hitta skemmtilegt fólk. Það tókst svo sannarlega því þarna voru saman komin hátt í 500 manns. Skemmtunin fór fram í nýrri reiðskemmu Glaðsmanna og heppnaðist í alla staði vel.
Það hefur verið frábært að fylgjast með hvernig uppbyggingin á félagssvæði Hestamannafélagsins Glaðs hefur farið fram. Þarna er kominn góður keppnisvöllur og nú reiðskemma. Eftirtektarvert er að þetta hefur að stórum hluta verið unnið í sjálfboðavinnu.
Já það mættu nú stærri og fjölmennari félög eitthvað læra þarna hjá þeim Glaðsmönnum.
Innilega til hamingju með þennan áfanga Glaðsfélagar og aðrir Dalamenn þetta hús á örugglega eftir að nýtast ykkur vel.
Myndir eru væntanlegar frá þessari fínu hátíð.
Garparnir litlu Léttlindur Hróðsson og Blástur Gustsson voru teknir hér heim um helgina.
Á næstunni verður þeim gefið auga og í framhaldi af því ráðnir í hlutverk við hæfi.
Þyrfti nú að smella á þá mynd svo að þið sæuð þó ekki væri nema litina.
22.10.2009 22:05
Púddufátækt og fleira
Á myndinni er góður höfðingi að njóta veður blíðunnar við húsvegginn hér í Hlíðinni.
Í gær var brunað í bæinn til að fara á kennslusýningu hjá Antoni Páli Níelssyni reiðkennara.
Sýningin var samstarfsverkefni Félags tamningamanna og Hestamannafélagsins Gusts sýningin heppnaðist mjög vel og var aðsóknin góð um 200 manns. Á næstunni verða fleiri svona viðburðir á vegum FT og ýmislegt spennandi framundan.
Eftir sýninguna var svo litið við hjá afmælisbarninu í Garðabænum og þar var náttúrulega þessi fína terta á boðstólnum. Takk fyrir mig Erla mín.
Það var líka rokið til fjalla í eftirleit og árangurinn var bara nokkuð góður rúmlega 20 kindur. Já það var ekki sérstaklega gott færið síðasta laugardag þegar við smöluðum svo það var nauðsynlegt að fara í tiltekt.
Ég hef verið að forvitnast um folana okkar sem eru í námi á Hólum þá Baltasar, Vörð og Fjórðung (sko ekki Mumma og Helga) þeir eru bara að standa sig vel og gera það vonandi áfram. Ég er orðin svolítið spennt að sjá þá og bíð eftir sýningunni.
Svo verður nú gaman að hitta Sjóðinn sinn aftur og sjá hvað hann hefur lært.
Annars er ég í frekar slæmum málum því að hænur búsins eru komnar í verkfall. Ég held að þær séu að mótmæla kreppunni eða ríkisstjórninni og hafi ákveðið að þær væru orðnar alltof gamlar til að verpa. Alltaf þessi æskudýrkun hjá kvennþjóðinni. Ég er orðin svo vön stórum sveitaeggjum með dökkri rauðu að ég fæ næstum klíu og klúðra öllum kökuuppskriftum þegar ég brýt lítil og náföl Bónus egg saman við degið.
Sem sagt mig vantar hænur...............................
19.10.2009 22:28
Örlögin ráðin...............
Kindastússið endalausa........................
Þið sem eruð að bíða eftir hestafréttum héðan úr Hlíðinni verðið að bíða í nokkra daga í viðbót því nú um stundir er ég sauðfjárbóndi. En törnin fer nú að klárast og á morgun fara héðan um 300 lömb í sitt síðasta ferðalag. Hér var tekin ærleg sveifla í gær vigtað og valið fram á harða kvöld og eitt er víst valið var erfitt. Í morgun mætti svo Lárus ráðunautur með sónarinn skoðaði og stigaði fjöldann allan af lömbum. Niðurstaðan varð 1oo lífgimbrar og 8 lífhrútar. Svo á eitthvað eftir að heimtast úr fjallinu og þá bætist hugsanlega eitthvað við fjöldann. Kröfurnar fara vaxandi með hverju árinu og margir góðir gripir verða að fara.
Góður hópur af lífgimbrum skiptu um eigendur í dag og vona ég að þær eigi eftir að verða nýjum eigendum til ánægju og ræktendum sínum til sóma.
Það er ekki grín að vera hrútur frekar en karlmaður það skal ég segja ykkur. Það reyndu 19 lambhrútar í dag þegar þeir fóru í gegnum nákvæma skoðun Lárusar ráðunauts og annara sjálfskipaðra ,,sérfræðinga,, (sérvitringa) hér í Hlíðinni.
Eins og áður sagði hafði forvalið (prófkjörið) farið fram en nú voru það kosningarnar.
Eftir fyrst umferð var ljóst að einungið 12 ættu möguleika miðað við þær kröfur sem upp voru settar. Kröfurnar voru meðal annars....... meira en 82 stig frá Lárusi, góðar mæður, ennþá betri feður, fegurð og fönguleiki að áliti ,,sérfræðinganna,, og síðast en ekki síst að hafa náð tökum á því að heilla húsfreyjuna og tryggja sér hennar velvilja. Stundum reynst vel. Markmiðið var að lífhrútarnir yrðu 4 eða kannske 6 svo að niðurskurðurinn hélt áfram.
Tölur voru skoðaðar og gripir metnir fram og til baka. Baráttan harnaði og ég er sannfærð um að hjartað var farið að slá hratt í vini mínum Sindra Kveikssyni þegar endanlegur dómur var kveðinn upp.
Fyrstur til að fá rauðamerkið í ennið sem þýðir líf var hrútur undan Fannari frá Ytri-Skógum snotur hrútur með bara þó nokkrar níur. Síðan voru það tveir synir Dökkva frá Hesti sem báðir eru svartir og einn bróðir í viðbót sem er hvítur. Dökkvi kom afar vel út hér á bæ.
Mókollur sonur Mókolls frá Borgarfelli kom næstur 60 kg hlunnkur sem landaði 84 stigum og getur verið stolltur af því að vera eini kollótti hrúturinn sem valinn var úr lömbunum þetta árið. Þróttur frá Staðarbakka átti einn son í þessum hópi sem var virkilega jafn og góður og skoraði vel.
Það sem gerir sauðfjárrækt m.a skemmtilega er það að leggja sig fram um að þekkja gripina og sérstöðu hvers og eins í það væri frábært að hafa endalausan tíma en svo er nú ekki. Ein fullorðin kind er hér í hópnum sem ég hef alla tíð haft miklar mætur á en þetta er kind sem að Einar heitinn móðurbróðir minn valdi til lífs eitt haustið og líklega sú síðasta sem hann valdi. Kindin Snjóka klikkaði ekki frekar en fyrri daginn og kom með gullgóðan 84 stiga hrút sem að ég er viss um að Einari hefði líkað.
Nú eruð þið örugglega orðin alveg viss um að ég kunni ekki að telja....................en ég verð að segja ykkur að svo er nú ekki, heldur eru fjöldamarkmiðin bara fokin útí veður og vind.
Og það sem meira er................ ég á að sjálfsögðu eftir að nefna einn gripinn sem að fékk náð fyrir augum allra í dag en það er enginn annar en Sindri Kveiksson. Hann raðaði á sig góðum stigum og stóð undir væntingum en ef að einhver efast um einhvern gæði hans þá hefur hann alltaf fullgilda afsökun..............................hann var rekinn úr kálinu.
Myndir af gripunum koma fljóttlega inná síðuna og þá er ykkar að dæma hvort valið var rétt.
17.10.2009 22:14
Hver verða örlög Sindra Kveiks???
Á mánudaginn var fundur hjá okkur í stjórn Félags tamningamanna og á þriðjudaginn var síðan fundur í Fagráði í hrossarækt. Þetta voru góðir fundir og ýmislegt í farvatninu á báðum vígstöðum.
Vil ég minna ykkur á að Anton Páll Níelsson reiðkennari verður með sýnikennslu í Reiðhöll Hestamannafélagsins Gusts í Kópavogi næsta miðvikudag þann 21 október. Ég hef farið á sýnikennslu hjá honum áður og það var alveg frábært svo að þið verðið að koma og kíkja.
Vitið þið hvað? kella bara búin að gera slátrið fyrir þetta árið. Við mæðgur og harðsvírað aðstoðarfólk tókum okkur til og gerðum ein 23 slátur. Tilfinningin er frábær þegar þetta er búið en breytir ekki því að það er meira kjötstúss eftir á þessu heimili.
Hann Salómon er snillingur á því hefur aldrei leikið nokkur vafi í mínum huga, já og flestra annara líka. Þegar ég kom heim úr smalamennskunni í kvöld hafði hann lagt sitt af mörkum í sláturstússinu. Já hann aðstoðar mig við ýmislegt þessi höfðingi. Verkefna röðunin er svolítið öðruvísi hjá honum en mér ég legg mig fram um að ganga frá öllu kjötinu og borða það síðan en hann borðar helminginn og ætlar að ganga frá restinni síðar.
Þessi munur getur svo sem stafað af því að mínir skrokkar eru svolítið stærri en hans og hann leggur mun meira á sig við að veiða sína skrokka en ég mína.
Það eru jú ekki til nein músasláturhús ennþá.............................
Í gær byrjuðum við að smala aftur og einu sinni enn nú skal fjallið hreinsað. Veðrið var vægt til orða tekið ógeðslegt rok og rigning en það var hlýtt bara svo ég nefni eitthvað jákvætt. Við komum heim með þó nokkuð margt fé þrátt fyrir veðrið. Í dag var svo lagt í seinni herferðina með fullt af góðum aðstoðar smölum. Færið og veðrið var nokkuð gott hér niðri en þegar komið var inná fjall og Djúpadal var færðin slæm. Snjór sem hnoðaðist í hófa og útsýnið mjög lítið. Stemmingin var ljómandi góð og jólalögin glumdu í hausnum á mér alla leið heim. ,,Snjókorn falla,, og mörg fleiri.
En okkur varð nokkuð ágengt og komum heim með góðan hóp sem verður rekinn inn á morgun og dreginn í sundur.
Á morgun verður líka farið í það vandasama verk að velja líflömbin svona gróft forval nokkurs konar prófkjör. Þá verða góðu Tiger gleraugun sett upp og gripirnir skoðaðir og metnir hverjir eru hæfir til að fara í sónarskoðun á mánudaginn.
Þá kemur í ljós hvernig kynbótahrúturinn Sindri Kveiksson spjarar sig kannske fær hann ,,prófkjörsráð,, hjá nafna sínum og sleppur í gegn um forvalið. Ef að hann lendir í basli með forvalið hefur hann góða afsökun......................hann var rekinn úr kálinu í sumar.
Mókollur vinur Sindra er sjarmatröll og sæðingur eins og hann, hver verða örlög hans????
Nánar um það síðar................................
10.10.2009 13:49
Er fokið í flest skjól??
Á þessari mynd er gullið mitt hún Karún að kljást við unga Gosadóttir sem heitir því framsýna nafni Framtíðarsýn. Þær nutu saman veðurblíðunnar á dögunum og lögðu sig fram um að kynnst nánar. Hryssurnar eru ánægðar með að vera komnar á hauststaðinn sinn en voru samt svolítið öfundsjúkar þegar Skúta og litla Trilla fengu einhverja sér meðferð í sliddunni.
Þær vor teknar og settar í skjól sem er ofan, neðan og allt í kring sem sagt inn á meðan versta veðrið gekk yfir. Það er munur að vera uppáhalds þegar maður er bara eins og hálfsmánaða.
Veðrið þessa dagana er hreint ekki eins dásamleg eins og við fengum í réttarstússið um síðustu helgi, þegar ég einmitt tók fullt af myndum sem ég hef nú sett inná ,,myndaalbúm,,
Okkur hefur verið boðið uppá leiðinda rok og stundum sliddu en megum kannske þakka fyrir að fá ekki aftakaveður eins og víða annars staðar.
Þarna er hann Kynbótakollur hann fer á níunda vetur sem er nú nokkuð hár aldur í hrútaheimi. En takið eftir hann er ekki eins og þið kallarnir........hann er sko ekki að verða skollóttur þó að aldurinn færist yfir. Reyndar eru nú eyrun farin að vísa full mikið til jarðar, en hvað um það sjarmatröll á sinn hátt.
Nú fer að styttast í kindastúss hér heima fyrst verða það smalamennskur og eftirleitir svo val á líflömbum og förgunarkindum. Mér finnst alltaf gaman að raga í fé spá og spekulegra skoða afkvæmi og rekja ættir. Þegar ég var lítil þá var dagurinn sem að lífgimbrarnar voru valda einn af þeim bestu þó svo að allar væntingar um líflömb stæðust ekki.
Nú bíð ég spennt eftir því að sjá hvernig ,,kynbótagripurinn,, Sindri kemur af fjalli einnig verður gaman að sjá Mókoll já og ýmsa fleiri. Það er ekki bara hrossaræktin sem er skemmtileg.
Það hefur verið að heimtast fé hér jafnt og þétt síðan í fyrstu leit en engin nákvæm talning farið fram. Við erum bara búin að senda lömb í förgun einu sinni í haust það var eftir fyrstu leit sem fóru 501 lamb. Fyrir þá sem hafa áhuga á meðalvigt þá var ég nokkuð sátt en hefði að sjálfsögðu viljað hafa hana hærri en flokkunin var góð. Meðalvigtin var meira en 15 kg en minna en 20 kg og reiknið þið nú......
Annars höfum við gert mikla skissu undanfarin ár þegar við höfum verið að setja 5-600 lömb í fyrstu förgun. Við hefðum átt að setja bara þessi 100 þyngstu og hafa svo nótuna með meðalvigtinni til sýnis allt haustið.
Hver skoðar dagsetningu þegar kílóafjöldinn er stórkostlegur?
Eitt er það sem farið er að banka óþægilega á undirmeðvitund húsfreyjunnar......SLÁTURGERÐ mér finnst það nokkuð ljóst að ég verði að gera eitthvað í því í næstu viku.
05.10.2009 22:41
Hryssurnar í hausthagann.
Í dag fóru hryssurnar í haustgirðinguna sína þannig að það voru síðustu forvöð fyrir þær að príla. Þær tóku smá æfingu fyrir sig og sín folöld eins og þið sjáið hér á myndinni.
Þarna röllta þær og afkvæmin í halarófu eftir Syllunum eins og þessi staður er kallaður.
Það var gaman að sjá folöldin aftur eftir nokkrar vikur í fjallinu, sum höfðu stækkað mikið en aðal breytingin á öðrum var að núna voru þau orðin loðin og lubbaleg.
Þarna er hún Fáséð mín Baugsdóttir að rekja spor..............hvert ætli þau liggji????
Ég setti inn svolítið af nýjum myndum frá þessum góða degi inná ,,albúm,, flipann hér á síðunni. Myndasafnið var samt ekki eins mikið og ég ætlaði því myndavélin varð batterýlaus áður en að við komum í girðinguna og einnig áður en að allar hryssurnar voru komnar í hópinn. Bæti úr því við fyrsta tækifæri.
04.10.2009 21:35
Spá.......halda......vona....og stundum.......verða viss.
Máninn fullur fer um heiminn.....................................og tyllir sér á Geirhnjúkinn.
Það var yndislegt veður í dag sama hvort það var á Skógarströndinni eða í Hnappadalnum.
Ég tók margar fallegar myndir sem koma inná almbúnin mín á næstunni.
Í gær fórum við í leit inná Skógarströnd þar voru leitir á Háskerðingi, Grásteinsfjalli og síðan í Stóra og Litla-Langadal. Veðrið var gott en færið var nú ekkert sérstakt þungt og snjóföl.
Ég verð að játa að skógur, lyng og sina bjóða ekki uppá skemmtilegt göngufæri þegar svo snjór hefur bæst við. Allt gekk þetta nú samt ljómandi vel með hjálp góðra hunda og fjórhjóla. Var fénu safnað saman og rekið í réttargirðinguna við Ósrétt og gleymt þar þangað til í morgun þegar það var réttað í blíðunni.
Hér er aðeins tekið á þjóðmálunum ekki veitir af....................
Albert, Ásbjörn, Helga, Sveinbjörn og Jóel.
Það voru skemmtilegar andstæður í litunum hér í Hlíðinni eins þið sjáið, meira af því þegar ég hef sett inn fleiri myndir.
Eftir að Ósrétt var búin var smalað hér útí hlíð og síðan farið í Hraunholt þar sem féð var rekið inn. Við heimtum þó nokkuð margt fé í dag og eru heimtur að batna dag frá degi.
Eitt af mínum uppáhalds sparilömbum kom í dag, það er hvít gimbur undan afburðagóðri kind sem ég hef mikla mætur á. Þegar hún fæddist í vor var ég næstum ákveðin í að þetta yrði kynbótagripur sem mjög líklega yrði fyrir valinu þegar kæmi að vali á líflömbum. Þá leyfði ég mér bara að vona núna er ég viss.
Þið sem að ekki stundið eða hafið áhuga á búfjárrækt verðið að vita að það er þetta sem er svo gaman við þetta allt saman.
Spá............halda...........vona..........og stundum.......verða viss.
02.10.2009 21:51
Skúta fengin og Háskerðingur á morgun.
Er ekki græni liturinn alltaf notalegur???????????
Að minnsta kosti þegar slyddan þekur gluggann og vindurinn næðir, já það er nú ekkert sérstök tilfinning að fara að smala Háskerðing á morgun. En rosalega verður það nú gaman ef að veðrið verður gott. Ég pannta logn, bjart og smá frost..........
Mér hefur alltaf fundist rollur og slydda passa illa saman þannig að veður eins og var í dag hér í Hlíðinni var sko ekki rolluvænt.
Ég verð nú að játa að ég er svolítið súr yfir því að hafa ekki getað þegið gott boð um að fara í stóðsmölun í Húnaþingi í dag. En það kemur dagur eftir þennan dag og þá verður sko tekið á því eins og þeir bröttu segja.
Á myndinni hér að ofan er dekur hrúturinn Snjall sem að á sér þann draum heitastan að fara til fjalla á sumrin. En Snjall er sparikind og alltaf til vandræða ef að hann fer í fjallið svo að hann eyddi sumrinu hér heima í túni. Ekki var nú ætlast til að hann kláraði kálið frá lömbunum svo að hér er Deila að berjast við glæpagengið snjalla.
Í dag voru sónarskoðaðar hryssurnar sem að voru hjá Glymi frá Skeljabrekku, þar var einmitt hún Skúta hans Mumma. Við höfðum beðið spennt eftir því að vita hvort að þetta síðsumarsskot hefði heppnast. Og heppnin var með að þessu sinni og sónaðist Skúta með 24 daga gömlu fyli. Skúta og litla Trilla Gaumsdóttir litu ljómandi vel út eins og við var að búast eftir dvölina á Eyri hjá þeim Lenu og Finni. Nú er bara að vona að allt gangi vel og ekki væri nú leiðinlegt ef að Skúta ætti þriðju hryssuna næsta vor.
Hann Einar í Söðulsholti var svo vinsamlegur að taka Skútu með sér heim því að við vorum í rollu stússi. Takk kærlega fyrir það Einar.
Núna eru bara tvær hryssur eftir að koma heim úr stóðhestagirðingum þær Tryggð og Spóla.
Ég var að skoða niðurstöðuna úr skoðanakönnunni hér á síðunni þær leiddu í ljós að 65% gesta lásu helst bloggið, 25% skoðuðu söluhrossin og 10% annað.
Þetta segir mér að ég ætti nú að fara að skrifa eitthvað gáfulegt og fjölga söluhrossunum.
01.10.2009 19:54
Viðja fundin, bræður í vanda, Kraftur og Tóti góðir.
Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað þið sjáið á þessari mynd.............ó jú þetta er hún Viðja sem var búin að vera týnd alveg síðan í október í fyrra. Ég var meira að segja búin að stroka nafnið hennar af hrossavitsblaðinu mínu en sem betur fer ekki búin að skrá hana dauða í Worldfeng. Viðja er þriggja vetra hryssa undan henni Tryggð minni og Faxa frá Hóli hún hvarf í október í fyrra og erum við búin að leita mikið. Ég var orðin sannfærð um að hún væri dauð og varð því ekki lítið ánægð þegar hún kom fram hjá honum Halldóri í Syðstu-Görðum. Viðja leit mjög vel út spik feit og hefur stækka helling, greinilega gott að vera í vist hjá honum Halldóri. Takk fyrir það.
Þegar Viðja kom heim var henni smellt beint inní hesthús og verður byrjað að temja hana fljóttlega. Já stundum gerast skemmtilegir hlutir.
Í gær fór ég á frumsýningu á myndinni ,,Kraftur síðasti spretturinn,, sem sýnd er í eina viku í Kringlubíói. Ég skemmti mér ljómandi vel og mæli hiklaust með því að fara og sjá þessa mynd. Hún er skemmtileg, tilfinningaþrungin og gefur fólki annað sjónarhorn á ýmsa þætti hestamennskunnar. Innslag bóndans í Kýrholti er tær snild, ég er enn að hugsa um það hversu mikill sannleikur var í orðum hans og ekki skemmdi fyrir að flétta köldum húmor saman við. Verð að játa að ég rúmlega brosi útí annað þegar ég hugsa um morgunvandræði verðbréfasalans sem hann vitnaði í. Ekki spurning skellið ykkur á myndina og munið að þið þurfið ekkert að vera forfallnir hestamenn til að hafa gaman af myndinni, þó það sé að sjálfsögðu ekki verra.
Áður en ég sá myndina var mér lofað gæsahúð, brosi og tárum..........það stóðst og ég notaði það allt.
Svo er ég líka rosalega ánægð að hafa eignast hryssu undan Krafti og bíð eftir að hún komist á tamningaaldur.
Eftir afrek síðustu helgar hjá þeim bræðrum Ófeigi og Þorra þar sem þeir snæddu úlpu húsfreyjunnar var ráðist í framkvæmdir. Nú hefur verið komið upp búrum í þvottahúsinu sem hýsir kappana þegar þeir eru ekki við löglega vinnu. Ófeigur er þokkalega sáttur með nýja híbýlið en Þorri er hundfúll vildi fá stærð svona meira í anda ársins 2007 og viðbrögðin eru þau að rétt sé að vera ekkert að koma heim í þessa holu.
Húsráðendur eru alsælir með framkvæmdirnar en bræðurnir eru frekar súrir og kenna ríkisstjórninni um vandann eins og sjálfsagt er.
Fyrirmyndarhestur dagsins var hann Skeggi Stælsson bara skemmtilegur.
- 1